Kannast þú við eitthvað af þessu?
Markaðsmálin sitja á hakanum
Ekki af áhugaleysi heldur af tímaleysi. Reksturinn tekur daginn og markaðsmálin lenda alltaf aftast í röðinni.
Þú veist ekki hvar á að byrja
Hugmyndirnar eru til staðar en það vantar einhvern til að segja hvað skiptir máli núna og hvað má bíða.
Það sem er gert hangir ekki saman
Stakir póstar, stök verkefni og engin heildarmynd. Þá er erfitt að sjá hvað skilar í raun árangri.
AF HVERJU HIPHIP
Samstarfsaðili sem byrjar á réttum enda
Fyrst er farið í kjarnann. Svo er mótuð skýr heildarsýn og lagðar undirstöður fyrir árangur til lengri tíma.
Markaðsstarf sem heild
Ekki stök verkefni eða póstar, heldur heildarmynd þar sem allt vinnur að sama markmiði.
Sveigjanlegt samstarf
Þjónustan er löguð að fyrirtækinu, ekki öfugt.
Skýr samskipti og framkvæmd
Unnið hratt, skipulega og með skýr markmið. Þú veist alltaf hvað er í gangi.
Vöxtur, ekki bara virkni
Markmiðið er langtímavirði. Virkni á samfélagsmiðlum er ekki árangur ein og sér.
NÁLGUNIN
Auglýsing skilar engu ef vefsíðan selur ekki
Þess vegna er allt skoðað í samhengi. Veikasti hlekkurinn ræður árangrinum, sama hversu góð auglýsingin er.
Vefsíðan
Breytir hún heimsóknum í fyrirspurnir?
Skilaboðin
Skilur fólk hvað þú gerir og fyrir hvern?
Auglýsingarnar
Ná þær til réttra aðila með réttu boði?
Efnið
Byggir það upp traust eða fyllir það bara í dagatalið?
Salan
Er fyrirspurnum fylgt eftir svo þær verði að viðskiptum?
Saman skilar þetta árangri
Þess vegna byrjar ráðgjöfin á samhenginu, ekki á auglýsingunni.
ÁSKRIFT
Fjórir pakkar, fast mánaðarverð
Frá mánaðarlegri ráðgjöf upp í fulla framkvæmd. Þú byrjar þar sem reksturinn stendur í dag og færir þig upp þegar hann vex.
Hjálpari
Hægri höndin þín
49.600 kr.
á mánuði
Ráðgjöf og aðgerðir sem fyrirtækið framkvæmir sjálft.
Séní
Markaðsfulltrúi til leigu
86.800 kr.
á mánuði
Aðgerðaáætlun og létt framkvæmd í hverjum mánuði.
Stefna, full framkvæmd og stjórn herferða.
173.600 kr.
á mánuði
Gúrú
Markaðsstjóri til leigu
Afreks
Markaðsleiðtogi til leigu
446.400 kr.
á mánuði
Viðvera, vinnustofur og eignarhald á verkefnum.
STÖK VERKEFNI OG VIÐBÆTUR
Þjónustan
Fyrir þá sem pakkarnir henta ekki, eða sem viðbót við áskrift.
Samfélagsmiðlar og auglýsingar
Herferðir á Meta, Google og TikTok sem skila sýnileika, umferð og sölu.
Efnisgerð og hönnun
Myndefni, hönnun og textar sem styðja við vörumerkið og skila skýrum skilaboðum.
Tölvupóstmarkaðssetning
Póstlistar og sjálfvirkt flæði sem heldur sambandi við viðskiptavini og styður sölu.
FERÐALAGIÐ AÐ ÁRANGRI
Það byrjar alltaf á að skilja samhengið
01
Spurningalisti
Þú segir frá rekstrinum, markmiðunum og stöðunni í dag.
02
Byrjunarfundur
Markmiðin eru sett í samhengi og næstu skref mótuð.
03
Aðgerðaáætlun
Skýr áætlun með aðgerðum sem hægt er að hrinda í framkvæmd.
04
Eftirfylgni
Reglulegir stöðufundir, árangursmat og aðlögun eftir þörfum.
Algengar spurningar
Það er eðlilegt að hafa spurningar áður en samstarf hefst. Finnurðu ekki svarið? Sendu línu
Byrjum á stöðunni
Skoðaðu pakkana eða bókaðu stutt kynningarspjall, án skuldbindingar.
Viltu fyrst sjá hvar þú stendur?